7.3.2009 | 23:41
Það er samt rangt að drepa fóstur
www.lifsvernd.com
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2009 | 22:38
Það er rangt að drepa fóstur .is
7.3.2009 | 04:11
Það er rangt að drepa fóstur
7.3.2009 | 01:47
Það er rangt að drepa fóstur
7.3.2009 | 01:37
Það er rangt að drepa fóstur
12-year-old speaks out on the issue of abortion
25.3.2008 | 23:36
Hjálpræðisherinn er til fyrirmyndar
Bræður og systur í Kristi. Ég hef lengi kannað trúmál og er stanslaust að læra um önnur trúarbrögð en Hjálpræðisherinn er ekki skráð trúfélag á Íslandi, þó svo að hann á margan hátt starfar eins og venjuleg kirkja. Samt finnst mér Hjálpræðisherinn vera trúfélag sem sameinar kristinna manna, það er til fyrirmyndar en starfið sjalft er mikilvægt fyrir fátæktina á Íslandi og í öðrum löndum. Ég er ráðinn í 100% starfi og er samherji og meðlimur félagsins, mér finnst fólkið þar vera mjög skemmtilegt. Ef það eru hetjur þá eru hermenn Hjálpræðishersins það og samherjar, því starfið sem herinn vinnur er ekki einfalt eða sjalfsagt. Þess vegna er þetta trúfélag sem sinnir kærleika og umhyggju fyrir hvaða einstakling sem er í stórum vanda í lífinu. Jesús er alltaf til staðar, hann yfirgefur okkur ekki, það erum við sem yfirgefum hann. Herinn er með líknar- og félagsstarf allstaðar í heiminum. Ég sem Kaþólskur vil starfa með þeim, ég fer á samkomur til að virka fyrir Helagan anda stanslaust og fer reglulega í kaþólska messu. Þessi atriði eru fyrir mig mikilvæg vegna þess að það er Heilagur andi sem knýr mig áfram í trúarlífinu, ég fæ andlegar upplifanir í Kaþólskri messu og samkomur hersins. Ég sem kaþóliki veit hvað það þýðir að koma í messu reglulega og biðja í messu og hvað það þýðir að meðtaka Altaris sakramentið. Margir svokallaðir kaþólikar misnota sakramentin, til dæmis skriftarsakramentið. Þeir fara inn og segja af sér syndir og iðrast ekki og þá gildir ekki aflausnin, sem Presturinn fyrir hönd kirkjunnar færir. Ég er ekki saklaus í þessu heldur en ég veit betur í dag vegna þess að ég bið til Drottins með opið hjarta og huga. Samviska er mikilvægt atriði og siðfræði. Það sem ég vil leggja fram er það að ef þú ert trúaður, alveg sama hvaða kirkju þú tilheyrir, að fræðast um önnur kristin trúarbrögð þannig að þú veist betur áður en þú ferð að gagnrýna þau. Ég viðurkenni það að kaþólikar eru ofsóttir í heiminum en fólk sér ekki og skilur okkur ekki vegna fáfræðis. Ég vil ekki særa nein með það sem ég skrifa hér en þetta er það sem ég persónulega er að upplifa í dag. TAKK. Tómas þin bróðir í Jesú Kristi, amen.
Trúmál og siðferði | Breytt 31.3.2008 kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 04:46
Ég er Kaþólskur !!!!
Bræður og systur í trúnni. Þegar ég var 12 ára byrjaði ég að fræðast um kristna trú, ég skírðist Lúþerskur en fermdist Kaþólskur. Faðir minn var Lúþerskur og móðir mín var í Hvitasunnukirkjunni. Ég fór oft í hvítasunnukirkju úti í Bandaríkjunum í mörg ár þangað til ég flutti til Íslands aftur. Ég bjó í Bandaríkjunum í 11 ár, frelsaðist og fann sterklega nærveru Drottins. Ég las Biblíuna mikið og kláraði hana og byrjaði að fræðast um allskonar trúarbrögð og -atriði. Þegar ég var orðinn 15 ára fann ég fyrir köllun í þjónustu Drottins en ég var ekki sáttur við kirkjuna sem ég var meðlimur í en ég hélt áfram að mæta á sama stað eins og ekkert var að. Ég var ekki viss, kannski var Jesús að reyna að segja eitthvað eða einhver annar???? Þá man ég að á pulpit, þar sem pastorinn stóð og predíkaði á hverjum sunnudegi, stóð GJÖRIÐ ÞETTA Í MÍNA MINNINGU. Þessi orð voru föst í huga mér og ég hef séð þessi orð í mörg ár, svarið var beint fyrir framan mig. Bróðir minn hafði gengið í borgarlegt hjónaband með kaþólskri konu og mér var boðið í messu og vinkona hennar var að lata skíra í Maríukirkjunni sem er Kaþólsk kirkja og ég fór með þeim ásamt hinum eldri bróður líka og hlustaði með gagnrýni. En þegar var komið að altarisgöngu þá hlustaði ég vel og heyrði þessi heilög orð, presturinn sagði allt frá Biblíunni þegar Jesús sat með lærisveinum sínum og sagði: GJÖRIÐ ÞETTA í MÍNA MINNINGU. Þá man ég eftir pulpitinu og byrjaði að hugsa, ég byrjaði að fara í messu á hverjum degi, alla daga vikunnar, af því að í kaþólsku kirkjunni er messa á hverjum degi frá mánudegi til sunnudags. Á Altarinu var latina og ég spurði Prestinn hvað þetta þýddi. Hann sagði þetta þýðir GJÖRIÐ ÞETTA Í MÍNA MINNINGU og í kaþólsku kirkunni er alltaf altarisganga en ég fór aldrei fram. 1 dag var ég eftir messu að fara með bænir og ég hitti Prestinn. Ég hafði talað við hann áður í skírnarveislunni í safnaðarheimilinu og sá að hann var fylltur heilögum anda og ég bar mikla virðingu fyrir þessum manni. Hann spurði mig hvort að ég hafði áhuga að fræðast um Kaþólska trú. Ég sagði já og eftir 2 ár í trúfræðslu kirkjunnar vildi ég endilega gerast Kaþólskur. Ég fann fyrir í hjarta mínu og huga að þetta er hin sanna trú sem Jesús hafði stofnað og Pétur lærisveinn var fyrsti Páfi og leiðtogi kristinna manna eftir að Jesús steig upp til himna, ótrúlegt en satt, vegna þess að Kaþólska kirkjan var fyrsta kirkja kristinna manna. Og ég var ástfanginn, ég fann að mig vantaði sakramentin, sérstaklega Altaris sakramentið sem Jesús stofnaði með lærisveinum sínum, og ekki bara þetta heldur sakramentin 7 og í dag trúi ég á Eina Heilaga sanna Kaþólska postullega kirkju. Ég er fyrsti kaþóliki í fjölskyldu minni síðan Biskup Jón Arason, Pislavottur Kaþólsku Kirkjunnar eftir siða skiftin voru á Íslandi. Ég er mjög hamingjusamur í dag og er mjög virkur í trúnni, ég hef hugsað að gerast Prestur en ég starfa núna sem trúboði í samstarfi hjá Hjálpræðishernum sem samherji og seinna Hermaður í Hjálpræðishernum vegna þess að ég get verið kaþólskur á sama tíma, af því að Herinn vill að ég hafi mína trú og biður mig ekki að segja mér úr Kaþólsku kirkjunni. Ég mæti í messu og á samkomur hersins, ég veit hversu mikilvægt er að mæta í Messu og meðtaka Altaris Sakramentið og Skriftar sakramentið reglulega. Þetta geri ég í HANS MINNINGU sem Altaris messu þjón Kaþólsku kirkjunnar o.s.f. Takk fyrir að taka tímann að lesa þetta, ég vona að þú skiljir mig, þín bróðir Tómas í Jesu nafni, amen. P.S: Ég er frelsaður í gegnum sakramentin 7.
Trúmál og siðferði | Breytt 31.3.2008 kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)